Myndir af hinu og þessu í gegnum tíðina.
Dúettinn á bak
við lás og slá. Árni og Haukur á herrakvöldi.
Addi vinur þegar hann var í Tvöföld Áhrif.
Berglind Björns með fiðluna sína þegar hún var í tónskólanum.
Dammi félagi á Dalvík í svaka stuði eins og alltaf.
Svo er það hann Geiri með fallegasta brosið í bransanum
Ingvar og ég að taka út sönginn hjá strákunum í kleifakórnum, þeir sluppu fyrir horn í þetta skipti. Það kemur stundum fólk að hlusta á okkur, eða kom það bara til að fá frítt að éta. (Fiskidagurinn mikli) Svo komu strákarnir í Thingtak í heimsókn, þetta er hann Sverrir trommari. Hrafnkell Brimar gítarleikari fer á kostum á þeirra nýjustu plötu, skemmtileg plata hjá strákunum í Thingtak. Svo fór hljómsveitin KYNSLÓÐ625 á Músíktilraunir og stóðu sig vel, Jón Már söngvari að taka lagið.
Jaan Alvere tók lagið með okkur í Roðlaust og beinlaust snillingur þar á ferð. Bjössi  að spila kassann í kosningalaginu sínu. Svo þarf að syngja þetta skemmtilega lag sem þið getið heyrt hér Stulli með harmónikkuna setja nokkur lykk á lag eftir Gylfa Ægis. Sævar að taka á því, hann syngur 4. lög á nýu plötunni.
Svo var komið að Gulla að syngja Minning um mann eftir Gylfa Ægis. Svo kom Alexsandra að hjálpa Afa að taka upp, henni finnst ekki leiðinlegt að fikta í öllum tökkunum. Gaman að sjá hvernig hljómsveitin Grallarnir (það er önnur mynd af þeim aðeins neðar) breyttust í unglingahljómsveitina KYNSLÓÐ625. Og svo er það Kleifakórinn skemmtilegasti kór í heimi. Coverið hjá Lísu Hauks,
Gísli Hvanndal jólapopparinn okkar Ólafsfirðinga
Sverrir Þorleifsson trommari að guðs náð.
Geir Hörður sveittur á Oddvitanum
Hljómsveitin Tvöföld Áhrif á Oddvitanum eða Hálfvitanum eins og við stundum kölluðum hann
Gulli Helga einbeittur að vanda 
(klikkar ekki)
Svo er það ég sjálfur þegar ég var í Tvöföld Áhrif
Aftur mynd af mér
Og það þurfti að róta og róta og róta og róta og róta og róta og róta.
Ég og tengdapabbi í fyrsta og síðasta skiptið sem við tróðum upp saman
Hljómsveitin Ecko,
Fór á músíktilraunir og stóðu sig með prýði. Gísli Hvanndal var kosinn besti söngvarinn.
Og svo er það kóngurinn sjálfur,
Sævar Sverrisson.
Þessi með flautuna er okkar besti skíðamaður í dag, Kristján Uni Óskarsson.
Ólöf Elsa hún var nú líka góð á skíðum.
Bassaleikarinn í XL Ragnar K að stíga sín fyrstu spor í tónlistinni.
Hljómsveitin
Herbert Feiti.
Mörg skrítin nöfn á hljómsveitunum hér í bæ.
Lúðrasveit Ólafsfjarðar.
Tónskóli Ólafsfjarðar sennilega fyrsta skólahljómsveit Tónskólans.
Hljómsveitin Samstarf, þarna má meðal annars sjá í afturendann á Helga Reyni. 
Hljómsveitin Quaka,
Skíðamenn, rapparar og gítarleikarinn í XL Bragi Óskarsson.
 
Ingvar kvikmyndagerðamaður það er þessi sem á heiðurinn af heimildamyndinni um Roðlaust og beinlaust.
Ég veit ekki? bara flott mynd
Hljómsveitin Sweety Hræðileg mynd? eða er það ekki.
Tomezk fiðlusnillingur að spila með hljómsveitinni Ecko.
Hljómsveitin
Grallararnir.
Svo er það hún Klara eða Sara (skiptir ekki máli) þær voru báðar að læra á gítar.
-maggi.jpg (540114 bytes)
Það er verið að leika sér í photoshop annað slagið góð auglýsing fyrir Schecter gítara.
Katla Hrund er að taka grunnstig frá Tónskóla Ólafsfjarðar nú í vor.
Friðrik: sonur Ásgeirs læknis að berja húðir.
Svo er það hann Birgir Karl Kristinnson  sonur Kristins Ásmundssonar gítarleikara
Svo eru það Jón Bjarni, Jón Viðar og Egill ( man ekki hvað þeir kölluðu sig)
Eiríkur skólastjóri Tónlistarskóla Eyjarfjarðar að prófa Columbus þar að segja bassann. 
Stúlli vinur minn á Siglufirði 
að spila undir hjá ÓB kvartett, ÓB þýðir hvað?
gleymi því alltaf.  
Gulli Helga var í MoGo/mucis nú um daginn að plokka bassa og syngja bakraddir. Þetta er nýtt lag með Gísla Hvanndal sem kemur út nú í sumar.
Friðrik Ómar er að setja upp Elvis show hér á Blúshátíð í Ólafsfirði
7. júlí. og eins og allt sem Friðrik gerir er ekkert til sparað það er farið alla leið til Graceland og hlutirnir teknir út í réttum hlutföllum.
Þetta er ÓB kvartett frá Siglufirði.
Já náttúran er stundum að leika sér líka, en ekki í photoshop. Það hefur rekið nokkra ísjaka hér inn á fjörðinn og upp í fjöru og einn ísjakinn tók á sig þessa mynd já kallinn, eins og önd.
Lúðvík; Viktor og Jón Már eru ungir verðandi tónlistarmenn sem hafa verið að æfa upp þetta skemmtilega tríó. 
Myndin fengin að láni hjá Hannesi frænda á www.hyrningur.is
Jæja Pabbi fékk að ráða fermingagjöfinni þetta árið enda löngu orðið tímabært að strákurinn eignaðist trommusett.
Dúi vinur minn að taka lagið í Mogomusic. Dúi er ekki að taka mikinn tíma í þetta í þetta skiptið var það bara one take.
Stúlli fylgist grannt með að upp úr Dúa kæmu nú ekki einhverja texta vitleysur.
Svo þurfti Stúlli að bæta nokkrum lykkjum við þegar Dúi var búinn að syngja.
Hildur var að fá að prófa settið.
Það voru samt engir sem toppuðu þær Vöku og Hafdísi, hærra kemst maður ekki á Blúshátíð.
Alexander tók þátt í Blúsátíðinni með hljómsveitinni sinn Gröllurunum og þau blúsuðu eins og englar.
Gísli hefur verið að taka upp lag í MoGo/music, Álfar sem hann söng svo eftirminnilega í Idolkeppninni. Kannski verður frumflutningur á laginu á Blúshátíðinni
Eggert: Það hefur ekki farið af  honum brosið síðan á blúshátíðinni.
Bjössi og Helgi bróðir eru í skjávarpadeildinni,sem er svipuð deild og lávarðadeildin í Bretlandi.
Ps: takið eftir þessu stingandi augnaráði.
Trausta er gott er að hafa í kringum sig þegar kemur að græjum og mixi. Annars er Trausti fjölistamaður á allt sem hljóð kemur úr.
Svo skellti Gísli bara upp úr yfir öllu saman
Dóri snillingur alltaf jafn cool á því, maður stressast ekkert upp í kringum hann.
Við hjónakornin skelltum okkur til  Parísar með hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust og var sú ferð snilld frá upphafi til enda.
Addý systir, Rikki, Lúðvík og Hildur Gyða vor heldur ekki langt undan enda Rikki  söngvari í Roðlaust og beinlaust.
Það er ekki oft sem maður nær mynd af henni Agnesi, henni er ekki vel við myndarvélar.
Bjössi var orðinn verulega franskur í restina af túrnum til Frakklands.
Ég tók lagið með Elton John, hann var frekar daufur kallinn, veit ekki hvort það var spilamennskan hjá mér, eða eitthvað annað.
Þessi var skemmtilegur og nýjasti meðlimur í Roðlaust og Beinlaust, en það verður erfitt að fá hann á æfingar hann býr nefnilega á Írlandi.
Sævar og ég að bíða eftir þjóni og okkur leiddist ekkert á meðann. Frakkarnir eru ekki sleipir í ensku og ef þeir skilja hana ekki þá tala ég bara Íslensku við þá sagði popparinn.
Þessar tvær eltu hljómsveitina út um allt Frakkland við köllum þetta grúpppíur á Íslandi.
Við skelltum okkur í Tívolíhjól í Paimpol og þóttumst bæði vera ísköld.
Nánar tiltekið !
þetta hjól, svolítið hátt fyrir minn smekk, kann betur við hjólið mitt.
Addý og fjölskyld að leggja af stað í hjólinu, Addý lagðist síðan alveg á botninn á körfunni, skíthrædd stelpan.
Beggi bassaleikari og Álfheiður að bíða eftir að komast hring í hjólinu
Roðlaust og beinlaust á tónleikum í Paimpol.
Önnur mynd frá sömu tónleikum var að setja þessa líka, það virtist enginn vera á tónleikunum á hinni myndinni.
Komnir á flugvöllinn á leiðinni heim fluginu var seinkað um 1. kl. þess vegna gafst tími til að stilla sér upp
DSC01230.JPG (150716 bytes)
litlujol_021.jpg (34381 bytes)
Um hver jól gefum við feðgarnir út jólakort, hér eru Alexander og Magnús að taka út síðustu upptöku. Ég er hérna megin.
Svo förum við feðgarnir og spilum saman jólalög fyrir starfsfólk og viðskiptavini Sparisjóðs Ólafsfjarðar.
Lísa Hauks er að gefa út lag (ennþá leyndarmál hvaða lag) og kom við til að taka út demóið.
Thiago Trinsi var hér á dögunum að taka upp gítarinn í laginu hans Gísla Hvanndals Fallen Angels.
Pétur trommari í Roðlaust og Beinlaust tekið á æfingu fyrir Frakklandstúrinn.
Hljómsveitin Xl  hafa verið að taka upp hér hjá MoGo/music nokkur frumsamin lög eftir Braga Óskarsson og voru þessa myndir teknar við það tækifæri. Bragi að taka nettan sóló.
Gísli að gera klár fyrir sönginn.
Hjölli að berja saman lagið.
 
Haukur tilbúinn að láta slag standa.
 
Beggi Bassi! hann tók upp á því að spila með okkur í Roðlaust og Beinlaust þegar við fórum til Frakklands. Þurfti aðeins að NUDDA í honum svo sagði hann JÁ.
Helgi að taka sóló á blúshátíðinni
Atli varð líka að fá að spreyta sig taka eitt sóló,  þetta gengur út á það.
Alex var ekki langt frá þeim félögum í Blúsbandinu.
Rakarabandið hefur slegið í gegn, þar sem þeir hafa spilað.
Og einu sinni slógu þessir líka í gegn, hétu Rakarabandið eins og hinir skrýtið!!!
Það varð að smella einni mynd af öllu genginu í París.
Sævar myndast alltaf vel og alltaf stutt í grínið hjá kallinum.
Þessa sviðmynd þurftum við að þola út í Paimpoil.
Maite og Hulda á tónleikum hjá Tónskóla Ólafsfjarðar, Mait er sennilega stærsti kennari sem ég hef unnið með.
Jón Már blúsari og var flottur á því.
Bara falleg mynd.
Prófa að taka mynd af sjónvarpinu.
Valli kom í stúdíó og skellti trommum á 2 lög.
Lísa var að taka á því.
Gísli sallarólegur.
Miðaldamenn að spá í spilið.
Ari í Árgerði gaf út disk í kringum fiskidaginn á Dalvík.
Friðrik Ómar er snillingur það verður ekki af honum skafið.
Annar snillingur, en ekki á gyðingahörpu.
Hjómsveitin Roðlaust og Beinlaust á leiðinni heim frá París eftir vel heppnaða tónleika í Paimpoil.
 
Alexander trommari
í Gröllurunum
Og fleiri trommarar
hér er Hjalti Hauks
að berja húðir
Og einn enn trommari
Ágúst Sigurlaugsson
 
Já það er bara til einn Maggi Klöru og þessi mynd var tekin þegar Rikki mágur varð
50. ára.
 
Hit Counter