Fróðleikur. 
Fróðleikur fyrir gítarleikara.
 
 
Textar nýtt: Roðlaust og beinlaust og fleiri   
 
Nokkur ný lög (tab) og svo er það fróðleikurinn.
 
 
 
Bestu gítarar í heimi
klikkaðu.
 
 
hafðu samband 
sími: 466-2514
gsm: 898-2516
mogo@simnet.is
 
 
 
www.mysongbook.com
 
Hér er ein síða fyrir gítarleikara og er hún ein sú besta sem ég hef séð. Þú getur náð þér í forrit á síðunni sem að vísu er DEMO en síðar meir getur þú keypt það ef þér líkar það. Á þessari heimasíður eru komin u.þ.b. 34.000 lög og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
 
 
 
 
Musicrobot er skemmtileg leitarsíða finnur alla texta, 
gítartab, midifile, og myndir. 
www.musicrobot.com
 
 
Blanksheetmusic.net
 
Oft er ég búinn að bölva þegar mig vantar tab eða nótnablað. 
Hér á þessari síðu finnur þú öll þau form sem til eru fyrir músík.
www.blanksheetmusic.net/

 

 
 
 
 
Free Music Utilities
Hér á þessari síðu eru allskonar forit bæði fyrir gítarleikara, söngvara og  píanóleikara. Þessi forit þjálfa bæði hljóma og heyrn, síðan er þarna  þessi líka fíni taktmælir.
http://www.music-utilities.com/
 
 
Steve Harding's Website
 
Hérna eru flottir Midi Files og Karaoke fælar
http://www.steveharding.com/index.html
 
 
Welcome to vanBasco.com!
 
Hérna er þessi fíni karaokespilari sem þú getur 
náð í frítt og svo er bara að syngja með.
 
http://www.vanbasco.com/
 
 
Af hverju gítarleikarar halda mishátt á gítar.
 
  Kostir: Þessi staða kemur sennilega frá klassískum gítarleikurum. Þó var þessi staða vinsæl í kringum 1960 
og voru þó nokkur bönd sem sem stilltu sér upp með þessu lúkki  Kosturinn við þessa uppstillingu er það 
að þú sér allan  gítarinn mjög vel og er nokkuð þægileg fyrir vinstri hönd og bak.
 
Ókostir:. Já í fyrsta lagi er þetta ekki cool, sennileg stoppar þessi staða blóðstreymið fram í hægri handlegg 
sem veldur því að þú færð náladofa og getur ekki klárað giggið. Sennilega á þessum tíma voru heldur 
ekki framleiddar nógu langar ólar.  Ef þú værir að spila ber myndi litli vinurinn sjást og þá þarftu að skanna
 þig inn í photoshop og líma svona rauðan miða yfir.
Kostir: Ég hafði spilað illa allt giggið en bar það af  mér með því að segja að ég hafði verið í spreng allan tímann.
 
Ókostir: Maður lítur út eins og lúði og allur tíminn fór í það að passa að litli vinurinn sæist ekki 
 sem hlýtur að vera mjög þreytandi fyrir háls og bak.
 
  Kostir: Flott staða, þú þarft ekkert að vera hræddur 
að litli vinurinn sjáist þar að segja ef þú ætlar að spila nakinn. það er mjög þægilegt að taka gítarinn 
af sér ólin orðin tæpir 3. metrar  og virkar eins og  þú sért að fara úr náttslopp.
 
Ókostir: . Reynir mjög mikið á innanlærisvöðvana að standa svona gleiður í fjóra tíma gott væri 
að þú tækir svona mánuð í æfingar í Þrekvirki áður en þú spilaðir svona. Annar ókostur við þessa stöðu er sá, 
þú nærð ekkert að spila á gítarinn. hægri höndin nær ekki niður á strengina, svo að sennileg þarftu 
að fara í lýtaaðgerð til að lengja á þér handleggina.
 
DUCKWALK
 
 
Mjög mikilvægt að rafgítarleikarar ná þessari tækni  fyrir fyrsta gigggggggggggggg.
 
Þú setur vinstri fótinn út og reynir að hafa hann eins beinan og þú getur. Hællinn á að nema við gólf og 
tærnar að snúa upp í loft. þú þarft að reyna að beygja hnéð eins mikið og þú þorir, ef þér verður illt í hnénu 
hættu strax við þessa æfingu. Neyðasíminn er 112.
Þú þarft að beina gítarnum í sömu átt og fóturinn vísar annars verður andaæfingin ekki cool.
 
Ýttu þér nú áfram með hægri löppinni og ef  að allt gengur samkvæmt áætlun ætti vinstri fóturinn að yfirgefa gólfið.
 
Bara að muna að hafa alltaf vinstri fótinn beinan og láta hann snerta gólfið í hvert skiptið sem .þú tekur dýfu.  
Svo er bara að prófa aftur og aftur þangað  til að þú ert búinn að ná þessu.  
Næst þegar þú ferð í búðina þá er fínt að nota hluta af leiðinni í að æfa andargöngu ég tala ekki nú um
 það meðfram tjörninni hér í Ólafsfirði það er aldrei að vita nema eitthvað eða einhverjir 
bætist í hópinn.    (braaaaa.)
Ps: muna að plögga úr gítarnum áður en lagt er af stað í langferð.

 

 

Snillingur á heimavelli
hóst hóst!
 
Jæja næsti fróðleikur er um mig ( plögga)  þessi grein birtist í tímaritinu ský
 (eða skýið) ég er ekki alveg viss hvort er. Það sem ég get sagt um þessa grein er hún er ágæt á sinn hátt, (fín auglýsing ) mér hefur aldrei verið hælt eins mikið um ævina og ég er búinn að vera með hiksta síðan hún kom út. Það er greinilega að einhver annar en ég hefur talað tæpitungulaust við blaðamennina 
( hef einn grunaðan ) og kann ég honum bestu þakkir fyrir.

 

Hit Counter