Ný geislaplata – Dyggðirnar – Til styrktar Regnbogabörnum

 

 
Hjá Mogomusic ehf í Ólafsfirði er komin út geislaplatan Dyggðirnar sem inniheldur 15 lög eftir Þórarin Hannesson en textar eru eftir Herdísi Egilsdóttur.   Textarnir eru úr bókunum Betri skapgerð sem Listfengi ehf gefur út og eru m.a. notaðar í mörgum af grunn- og leikskólum landsins. 
Platan var hljóðrituð hjá Mogomusic, Magnús G. Ólafsson sá um útsetningar og stjórnaði upptökum en Trausti Már Ingólfsson hljóðblandaði.  Þórarinn syngur ásamt fjórum börnum frá Siglufirði, þeim Bjarna Mark Antonssyni, Karenu Ósk Jónsdóttur, Patreki Þórarinssyni og Rebekku Rut Ingvarsdóttur. 
Gunnlaugur Helgason sá um bassaleik og raddir, Trausti Már um trommuleik og Magnús G. Ólafsson um annan hljóðfæraleik og raddir.
Segja má að lögin á plötunni séu fyrir börn á öllum aldri og boðskapur textanna er öllum hollur. 
Platan er gefin út til styrktar samtökunum Regnbogabörnum og seld í símasölu. 
 
 

Dyggðirnar

 

Textar og hljómar

 

 Klikkaðu á lögin til að heyra tóndæmi.

 

1.  Eining   

2.  Ábyrgð   

3.  Vinsemd  

4.  Virðing   

5.  Trygglyndi  

6.  Heiðarleiki   

7.  Ákveðni    

8.  Traust   

9.  Hugrekki   

10. Sköpunargleði  

11. Umhyggja  

12. Fyrirgefning   

13. Þolinmæði   

14. Sjálfsagi   

15. Friðsæld 

 

 

 

 

Hit Counter